Ársfundur Stapa

Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 2. maí nk. í Menningarhúsinu Hofi kl. 14:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Setning ársfundar
  2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
  3. Fjárfestingarstefna sjóðsins
  4. Hluthafastefna sjóðsins
  5. Breytingar á samþykktum
  6. Stjórnarkjöri lýst
  7. Kosning löggilts endurskoðanda
  8. Starfskjarastefna
  9. Ákvörðun um laun stjórnar
  10. Val á fulltrúum í nefnd um laun stjórnar
  11. Önnur mál

Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og vonast stjórn sjóðsins eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs leggur til að breytingar verði gerðar á samþykktum sjóðsins á ársfundi hans.

Samkvæmt grein 10.1 í samþykktum sjóðsins skal senda aðildarfélögum tillögurnar minnst tveimur vikum fyrir ársfund. Greinargerð með samþykktarbreytingum hefur verið send aðildarfélögum.

Gögn fundarins:
Dagskrá og tillögur stjórnar
Ársreikningur Stapa 2023
Ársskýrsla Stapa 2023
Tillögur til samþykktarbreytinga og greinargerð
Starfskjarastefna